Borgarhöfði

2023-2026
Reykjavík
Klasi
22.000m2
Í vinnslu
Skrifstofur og menningarhús

Markmiðið við Borgarhöfða 9A er að skapa lifandi og kraftmikið umhverfi sem styður við fjölbreytta starfsemi – hvort sem er fyrir samveru, vinnu, afþreyingu eða slökun.
Fólk getur fundið sitt eigið rými, bæði inni og úti, þar sem það getur átt samskipti við aðra, notið þess að vera eitt með sjálfu sér eða einbeitt sér að verkefnum sínum.

Mikilvægt er að móta lifandi “borgarteppi” sem bindur svæðið saman og skapar fjölbreytta upplifun fyrir ólíka notendur. Þetta borgarteppi er bæði rými og leiðarljós – staður sem tekur á móti fólki frá fyrsta degi og heldur áfram að styrkjast og vaxa með tímanum.

Tvær byggingar vinna saman að því að móta virka og lifandi jarðhæð, á sama tíma og þær verða nýtt kennileiti í hinu vaxandi borgarumhverfi. Þær mynda eina heild, tengdar gegnum miðlægt og líflegt “hjartarými” sem sameinar svæðið.

Byggingarnar standa hlið við hlið hvor með sinn sterka karakter í arkitektúr sem veitir þeim sjálfstæði og einstakleika. Samt sem áður ná þær að tengjast sem ein heild í samræmdri heildarmynd.
Með sérstöðu sinni og mikilvægi í framtíð borgarhlutans á byggingin að bjóða upp á sterkan og auðþekkjanlegan karakter sem heiðrar iðnaðararf svæðisins og markar hlýlega og aðlaðandi inngöngu inn í hverfið.

Borgarhöfði 9A er framtíðin í hugmyndafræði fyrir skrifstofu- og menningarhús á Íslandi.

Borgarteppið kemur fyrst – síðan byggingin. Mörkin á milli ytra og innra eru látlaus og óskýr, þannig að rýmið rennur náttúrulega saman í eina heild.

Arkitektúr tillögunnar sprettur úr bæði þjóðlegri arfleifð og nútímalegum straumum og leitast við að skapa nýjan skandinavískan arkitektúr. Skrifstofubyggingin stendur með beinskeyttri og nákvæmri framhlið, í mjúku samspili við létta og draumkennda ásýnd menningarhússins. Þannig verða hlutverkin tvö skýrt aðgreind, en samt bundin saman með efnisnotkun og fallegum smáatriðum.

(S)kúl(p)túrtröppurnar leiða fólk í heillandi ferðalag um lifandi og kraftmikið menningarhús

Önnur verkefni